Skilmálar

Upplýsingar um seljanda 
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru frá Pastel blómastúdíó til neytenda. Seljandi er Pastel blómastúdíó ehf kennitala: 510220-0560, Virðisaukanúmer 137562. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum. Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Pöntun
Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 18 ára til að versla á pastelblomastudio.com
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Ein stærðarbreyting á hringum er innifalin í kaupverðinu, sé hún gerð innan mánaðar frá kaupdegi. Séu hringar sendir með pósti til breytingar, greiðir kaupandi sendingarkostnað.
Afhending og seinkun
Afhendingartími vöru eru 2-5 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. 
Sendingarkostnaður
Kaupandi greiðir sendingarkostnaðinn, og allan þann auka kostnað sem kemur til vegna sendingar nema annað sé tekið fram.
Verð
Pastel blómastúdíó áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar. Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir Pastel blómastúdíó og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa.
Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti.
Greitt á netinu
Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard. Greiðslan er hröð og örugg í gegnum Teya greiðslugátt.
Útsölur og vöruskil
Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
Skiptifrestur er 30 dagar frá afhendingardegi. Vöru sem er skilað þarf að vera í upprunalegu ástandi og í upprunalegum umbúðum. Kvittun eða vörureikningur þarf einnig að fylgja þegar það á við. Vörur eru ekki endurgreiddar, heldur einungis er um inneignarnótu í verslunum okkar að ræða. 
 Kvartanir
Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Ef varan reynist gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð eða nýja vöru. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega til pastel@pastelblomastudio.com. 
Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka. Við munum ávallt reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Neytendasamtökin. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
Ábyrgð
Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu, nema annað sé tekið fram. Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu eða umbúðum vöru sé framvísað. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða illrar meðferðar. Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnað eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar. Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði eftir 2 ára ábyrgðartíma. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.
Persónuvernd
Pastelblomastudio.com fer með persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni Hikros.is og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur Hikros.is samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins.
Pastelblomastudio.com mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inn á örugga greiðslusíðu Salt Pay og gengur frá greiðslu þar.
Aðgangur þinn og notkun á pastelblomastudio.com er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tilkynningu um lagaleg atriði.  Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu. Þessir skilmálar geta breyst fyrirvaralaust.
Aðrar spurningar
Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Sendu tölvupóst á pastel@pastelblomastudio.com eða hafðu samband í síma 6189358 á milli kl. 10-18 virka daga.